Velkomin í Háskólasetur Suðurnesja 
Háskólasetur Suðurnesja í Sandgerði í samvinnu við Sandgerðisbæ og fleiri aðila stendur fyrir sýningunni "Heimskautin heilla" í Fræðasetrinu í Sandgerði.
Sýningin er um franska heimskautafarann Jean-Baptiste Charcot, einn merkasta landkönnuð síðustu aldar en hann fórst með skipi sínu Pourquoi-pas? og áhöfn við Mýrar 1936. Sýningin er í tveimur nýjum sölum þar sem líkt er eftir brú og káetu í skipi frá tíma heimskautafarans.

|
| |
 |
|
Opnunartími - Alla virka daga frá kl. 9-17. - Um helgar frá kl. 13-17. - Lokað um helgar frá 1. okt. til 1. apríl
Aðgangseyrir - 600 kr. fyrir fullorðna - 300 kr. fyrir börn - 400 kr. fyrir eldri borgara
Nánari upplýsingar veitir Reynir Sveinsson staðarhaldari. Sími: 423 7551 og 897 8007. Netfang: fsetur@ismennt.is

| |